Ketill Jóelsson Consulting & Capital
Langar þig að stofna eða rekur þú lítið/meðalstórt fyrirtæki? Þú þarft einhvern sem skilur tölurnar, sér heildarmyndina og gefur þér friðinn til að einbeita þér að þínum verkefnum.
Ketill Jóelsson
Ráðgjafi · Fjármálastjóri · Eigandi
Þjónusta
01
Þú færð reyndan fjármálastjóra án þess að ráða einn í fullt starf. Ég leiði þig í gegnum bókhaldið, skil á skýrslum, skattframtalið og fjármálaráðgjöf – ekki til að gera allt fyrir þig, heldur til að tryggja að það sé gert rétt.
02
Frá hugmynd til skráðs félags. Ég leiði þig í gegnum öll skref: skráningu, bankareikning, lífeyrissjóð, stéttarfélag, VSK og uppsetning bókhaldsforrits.
03
Skattframtöl fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Ársskýrslur og öll tilheyrandi skýrsluskil til skattsins.
04
Sjóðstreymi, fjármögnun, endurfjármögnun og strúktúr fyrirtækis. Ég útskýri flókin fyrirbæri á einfaldan hátt og hjálpa þér að taka upplýstar ákvarðanir.
Um mig
Ég hef verið að hjálpa einstaklingum og fyrirtækjum með fjármál og rekstur frá 2019. KJC byrjaði sem ráðgjafafyrirtæki en þróaðist yfir í bæði ráðgjöf og eignarhaldsfélag.
Stofnaði mitt fyrsta fyrirtæki árið 2012 og hef tekist á við og rekið mig á allt sem hægt er að reka sig á. Þú færð þjónustu byggða á reynslu.
Það sem knýr mig áfram er að sjá fólk ná árangri. Vandinn er ekki tækni eða gáfur – heldur skortur á réttum stuðningi á réttum tíma. Það er þjónustan mín.
Ég trúi á persónuleg samskipti. Þegar þú ræðir við KJC ræðir þú við mig.
Félagasafn
Leigulausnir ehf.
Alhliða rekstur gistingar fyrir ferðamenn
25%
Northern Stay ehf.
Rekstur á Hótel Norðurland á Akureyri
25%
Þaka ehf.
Móðurfélag ferðaþjónustufélaga
25%
Eyn ehf.
Hugbúnaðarlausnir
17%
2709 Sagan ehf.
Kerfisstjórinn þinn í áskrift
50%
Hafa samband
Hvort sem þú ert að stofna fyrirtæki eða þarft hjálp við reksturinn þinn – ég hlusta.
Hvort sem þú ert að skoða fjármálastjóra í áskrift, stofnun fyrirtækis, skattframtal, fjármálaráðgjöf eða eitthvað allt annað – endilega hafðu samband. Segðu mér hver þú ert og hvað þú ert að pæla.
Senda fyrirspurn